19. maí. Hekluskógar
19. maí.
Breyting á dagskrá.
19. maí næstkomandi kl. 14.00 ætlum við að vígja „Mótorhjólaskóginn“
Síðastliðin þrjú ár hafa félagar í Ferða- og Útivistarfélaginu Slóðavinum farið á vorin til að planta trjám og dreifa áburði á lítið svæði rétt suður af Sultartangalóni undir stjórn Hreins Óskarssonar verkefnisstjóra Hekluskóga og í samvinnu við Landgræðslu ríkisins.
Árangurinn er ótrúlegur og er birkið sem gróðursett var vorið 2009 orðið allt að 50 cm trjám í dag. Þar sem áburði var dreift að vori á örfoka landi árin 2009 og 2010 er nú orðið gróið land, tilbúið undir birkiskóg. Eftir uppgræðsluferð vorið 2011 kom upp sú hugmynd að fá fleiri mótorhjólafélög til að græða upp svæðið norðan þjóðvegarins frá Þjórsárbrúnni við Sultartangavirkjun og að Ferjufit, allt norður að Sultartangalóni.

Mæting er fyrir alla samstarfsaðila (mótorhjólafélög) á bílastæðinu við Sultartangavirkjun kl. 13.00 á laugardag. Lagt á stað frá umboði kl 10.30 Þaðan verður hjólafólki fylgt að uppgræðslusvæði (c.a. 2km. í austur frá bílastæðinu, eða um 1km austan við seinni brúna (trébrúna)) og er áætlað að þessi fyrsta ferð taki u.þ.b. tvær klukkustundir í vinnu. Hvert félag fær úthlutað svæði fyrir félagsmenn sína og sér Hreinn Óskarsson verkefnastjóri Hekluskóga um að leiðbeina hjólafólki ásamt Slóðavinum við áburðardreifinguna. Slóðavinir verða með sexhjól til að flytja áburðinn í dreifingarmannskapinn og Hekluskógar skaffa áhöld til að dreifa áburði ásamt plastfötum undir áburð. Það sem þarf að hafa meðferðis eru vinnuvettlingar, gúmmíhanskar (sjóvettlingar eða uppvöskunarhanskar).
Við ásamt Slóðavina ætla að taka þátt í verkefninu eru: BMW Íslandi, Ernir á Suðurnesjum, Bifhjólasamtök Lýðveldisins Sniglar og Skutlur kvennaklúbbur.
Nýjar fréttir um Hekluskóga