Sækja um aðild

CHAPTER ICELAND
er „non profit“-félag sem er að hluta til styrkt af H.O.G. Europe og að hluta til af umboðsmanni Harley-Davidson á Íslandi.

Góðgerðarstörf eru hluti af starfsemi félagsins en að öðru leyti sameinar það Harley-eigendur og gefur þeim kost á að hittast og hjóla saman eða gera hvað annað sem félögum með sama áhugamál dettur í hug.

H.O.G. er fjölskylduvænt félag og eru fjölskyldur meðlima í Chapter Iceland þátttakendur í sumum uppákomum Chaptersins.

HVERJIR GETA ORÐIÐ FÉLAGAR?
Eingöngu eigandi Harley-Davidson mótorhjóls, sem er meðlimur í alheimssamtökum H.O.G., getur verið meðlimur í Chapter Iceland. Árgjald í H.O.G. eru 73 EUR og í Chapter Iceland 5.000 kr.

Til að kynna sér betur H.O.G. bendum við á síðu Harley Owners Group. http://www.hog.com

UMSÓKN
Við vonum að sem flestir bætist við í H.O.G. Chapter Iceland á nýju ári. Til að ganga í Chapter Iceland þarf að greiða félagsgjald bæði til Chapter Iceland og til H.O.G. Europe sem Chapter Iceland tilheyrir.

Gjaldkeri félagsins er Ólafur Jóhannesson, sími 696 8586, oliogdora (at) simnet.is.

H.O.G. Umsókn:

Captcha image for Custom Contact Forms plugin. You must type the numbers shown in the image


Eldri félagsmenn
Gefið upp H.O.G númrið og ef hægt er vinsamlegast gefið upp hvenær síðast var greitt í H.O.G. Europe og fyrir hvaða tímabil, t.d. eitt ár, tvö ár eða Life Membership, einnig hvenær greitt var síðast í H.O.G. Chapter Iceland.

Eldri félagsmenn:

Captcha image for Custom Contact Forms plugin. You must type the numbers shown in the image