Félag Harley-Eigenda á Íslandi

CHAPTER ICELAND
er „non profit“-félag sem er að hluta til styrkt af H.O.G. Europe og að hluta til af umboðsmanni Harley-Davidson á Íslandi.

Góðgerðarstörf eru hluti af starfsemi félagsins en að öðru leyti sameinar það Harley-eigendur og gefur þeim kost á að hittast og hjóla saman eða gera hvað annað sem félögum með sama áhugamál dettur í hug.

H.O.G. er fjölskylduvænt félag og eru fjölskyldur meðlima í Chapter Iceland þátttakendur í sumum uppákomum Chaptersins.

HVERJIR GETA ORÐIÐ FÉLAGAR?
Eingöngu eigandi Harley-Davidson mótorhjóls, sem er meðlimur í alheimssamtökum H.O.G., getur verið meðlimur í Chapter Iceland.

Árgjald í H.O.G. eru 73 EUR og í Chapter Iceland 5.000 kr.

Til að kynna sér betur H.O.G. bendum við á síðu Harley Owners Group. http://www.hog.com
UMSÓKN
Við vonum að sem flestir bætist við í H.O.G. Chapter Iceland á nýju ári.

Til að ganga í Chapter Iceland þarf að greiða félagsgjald bæði til Chapter Iceland og til H.O.G. Europe sem Chapter Iceland tilheyrir.

Gjaldkeri félagsins er Ólafur Jóhannesson, sími 696 8586, oliogdora@simnet.is.