H.O.G. – Chapter Iceland

Stóra hópkeyrslan

1. maí

1. maí

Sniglar munu halda sína árlegu hópkeyrslu þann 1. maí næstkomandi eins og venja er. Safnast verður saman á Laugaveginum kl. 11:30 og lagt af stað kl. 12:30. Keyrslan endar svo við Kirkjusand þar sem tekið verður á móti hópnum með kaffi og með‘ðí. Á planinu mun fara fram keppni í akstursleikni á vespum/skellinöðrum og eru verðlaun í boði fyrir færasta ökumanninn. Einnig verða veitt sérstök verðlaun fyrir þann sem er best gallaður með tilliti til öryggis. Sniglar hvetja allt vespu- og skellinöðrufólk á öllum aldri til að mæta og taka þátt í keyrslunni með okkur. Munið eftir klinkinu í Sniglabaukinn og að sjálfsögðu góða skapinu! Einnig viljum við biðja ykkur að taka sölumönnum Bláa naglans vel en þeir verða á svæðinu að safna fyrir nýjum línuhraðli sem notaður er við geislameðferð krabbameins.

Sjáumst hress á 1. maí!

Akstursleið keyrslunnar er: Fyrir HOG Chapter Iceland

Lagt af stað frá umboði kl 12.00 og hjólað niður á Laugavegi þaðan verður lagt á stað kl  12.30 og  hjólað um Lækjargötu, Vonarstræti, Suðurgötu, Hringbraut, Ánanaust, Mýrargötu, Geirsgötu, Sæbraut, Kringlumýrarbraut, Borgartún og endað á Kirkjusandi.

Share