Sumardagurinn fyrsti.
Sumardagurinn fyrsti
Það er búið að aflýsa hópkeyrslu á sumardaginn fyrsta sem var á vegum Skugga og Trúboða.
EN að sjálfsögu ætlar CI að fara í hópkeyrslu og við stefnum á að heimsækja Erni á Karnival 2012.
Svo tökum við einhverja góðar leiðir heim.
Við leggjum af stað frá nýjum áfangastað því að sófinn já og Harley Davidson umboðið er flutt á Kleppsveg 152.
Nýja búðin heitir Reykjavík Motor Center RMC.
Mæting kl 12.00 Lagt á stað 12.30.
Mæta með fullan tank, og þar sem þetta er fyrsta keyrsla er gott að athuga nokkur atriði áður en lagt er á stað,
loftþrýsting í dekkjum, olíu á vélbúnað og perur
Mættum og hjólum saman í sumar.
